Fotbolti.net
09.08.21 - 15:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Enski boltinn - Erkifjendurnir Arsenal og Tottenham

Auglýsing
Jón Kaldal og Ingimar Helgi.

Jón Kaldal og Ingimar Helgi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er minna en vika í upphafsflaut ensku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2021-22. Arsenal tekur á móti Brentford í opnunarleiknum á föstudag.
Við á Fótbolta.net höfum síðustu daga verið að hita upp fyrir deildina með sérstakri spá fréttafólks okkar.

Í þessari viku, áður en deildin byrjar að rúlla, þá munum við fá fulltrúa úr stuðningsmannahópum "stóru sex" félagana á Englandi í hlaðvarpsþætti, tvö og tvö félög saman. Við byrjum á erkifjendunum Arsenal og Tottenham, sem er spáð sjöunda og sjötta sæti deildarinnar.

Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmaður Tottenham, mættu í stúdíó B á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um stöðuna hjá sínum uppáhalds félögum.

Meðal efnis: Spáin, Arteta á sínu öðru heila tímabili, Nuno var ráðinn, öflugir miðverðir fengnir til félagana, Rúnar Alex, Harry Kane sagan, Bukayo Saka er frábær, nóg að gera áður en glugginn lokar, Dele Alli, sameiginlegt byrjunarlið, Sol Campbell og draumatímabil.

Hlustaðu í spilaranum hér að ofan eða í gegnum Podcast forrit.

Sjá einnig:
Spáin fyrir enska - 7. sæti
Spáin fyrir enska - 6. sæti
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.