Fotbolti.net
09.09.22 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Pjanic til Sharjah FC (Staðfest)

Pjanic til Sharjah FC (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Miralem Pjanic hefur skrifað undir samning við Sharjah í sameinuðu furstaríkjunum.

Hann rifti samningi sínum við Barcelona á dögunum. Hann átti tvö ár eftir af samningi sínum en Barcelona borgaði ekki upp samninginn sem jafngildi 13 milljónum evra.

Hann hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við Sharjah með möguleika á framlengingu um eitt ár.

Þessi 32 ára gamli Bosníumaður gekk til liðs við Barcelona árið 2020 og lék 30 leiki fyrir félagið. Hann var á láni hjá Besiktas á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.