Fotbolti.net
09.09.23 - 16:39
Brynjar Óli Ágústsson

Gunnar Magnús tolleraður í miðju viðtali: Þetta stóð vel undir nafni

Auglýsing
<b>Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis</b>

Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hertz

„Frábær leikur, frábær skemmtun og virkilega ánægður og stoltur af stelpunum hér í dag,'' segir Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis, eftir 2-3 sigur gegn Gróttu í loka umferð Lengjudeildarinnar.

„Þær stóðu sig frábærlega og á móti frábæru liði líka. Þetta stóð vel undir nafni, úrslitaleikur og gaman að svona skyldi fara í lokaumferð,''

Það var mjög vel mætt á leikinn frá bæði Gróttu og Fylkis stuðingsmönnum.

„Eins og oft er talað um þá er þessi deild ofboðslega skemmtileg. Það liggur við að maður yfirgefur hana með söknuði. Margir frábærir leikir, við spiliðum við Víking um daginn þar sem það vorum um þúsund manns. Sama hérna, ég veit ekki hvað það voru margir, en það var þétt setið og heyrðist vel í okkar fólki,''

„Þetta er frábært starf í Fylki. Ég hef bara eignlega aldrei kynnst öðru eins baklandið sem er þarna og fólkið. Þá kemur það af þjálfarateymið mitt, þetta er ótrúlegt fólk sem ég eru með mér.''

Gunnar var tolleraður af Fylkis leikmönnum í miðju svari og var mikil gleði í mannskapnum.

„Þetta er alveg einstakur hópur. Ég held ég hef aldrei unnið með annan eins hóp og  sama þótt að þu sért að spila eða ert á bekknum, þá eru allar að fara í sömu átt. Það eru allar glaðar, jákvæðar og peppa hvort annað upp. Það er stór ástæða fyrir þvi að við tryggjum þetta sæti upp í Bestu deildinni í dag.''

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.