Fotbolti.net
09.09.26 - 22:29
Brynjar Ingi Erluson

Alonso: Ég tók áhættu

Xabi Alonso

Xabi Alonso

Canon

Mynd: EPA

„Ég er ánægður með úrslitin og viðbrögðin,“ sagði Xabi Alonso, stjóri CHelsea, eftir 6-3 sigurinn á Leeds í enska deildabikarnum í kvöld.
Enski deildabikarinn: Ótrúlegur níu marka leikur í Lundúnum - Palmer og Welbeck með tvö
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: Ótrúlegur níu marka leikur í Lundúnum - Palmer og Welbeck með tvö

Alonso gerði níu breytingar á byrjunarliðinu og það sást í fyrri hálfleik að leikmennirnir voru ekki alveg í takt.

Hann kallaði á stóru byssurnar í hálfleik og þær hjálpuðu Chelsea að snúa leiknum við og landa sigrinum.

„Ég tók áhættu með því að gera svona margar breytingar. Hlutirnir gengu ekki eins og við höfðum vonast eftir og því þurftum við að bregðast við. Ég tek ábyrgð á fyrri hálfleiknum en stuðningsmennirnir sköpuðu frábæra stemningu og hvöttu leikmennina áfram.“

„Ég var ánægður með að þeir væru tilbúnir. Þeir vissu að þeir myndu ekki byrja en voru samt klárir í að koma inn og hafa áhrif.“

„Það er erfitt að spila á þessu stigi með lið sem hefur varla spilað saman, sérstaklega gegn liði eins og Leeds sem spilar af mikilli ákefð.“

Cole Palmer skoraði tvívegis og Morgan Rogers lagði upp þrjú mörk, þar á meðal eitt fyrir Palmer. Þeir hafa náð frábærlega saman í upphafi tímabilsins.

„Það er svo mikilvægt að þeir nái vel saman. Þeir hafa svo gaman af því að leggja upp fyrir hvorn annan og það skiptir liðið miklu máli,“ sagði Alonso.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.