Fotbolti.net
09.09.26 - 20:26
Brynjar Ingi Erluson

Barcola klúðraði dauðafæri og fór meiddur af velli

Barcola klúðraði dauðafæri og fór meiddur af velli
Canon

Mynd: EPA

Franski vængmaðurinn Bradley Barcola er farinn af velli vegna meiðsla í leik Liverpool gegn Atlético Madríd.
Elskar að skora á Anfield - Fimm mörk í síðustu þremur leikjum
TENGT EFNI

Elskar að skora á Anfield - Fimm mörk í síðustu þremur leikjum

Barcola var í byrjunarliði Liverpool í fyrsta sinn eftir ágæta innkomu gegn Ipswich um helgina.

Liverpool lenti undir gegn Atlético þegar Marcos Llorente skoraði sitt fimmta Meistaradeildarmark á Anfield. Dominik Szoboszlai jafnaði hins vegar undir lok fyrri hálfleiks með góðu skoti eftir stórkostlega hælsendingu Ronald Araujo.

Snemma í síðari hálfleik fékk Barcola dauðafæri eftir að Florian Wirtz sendi hann í gegn. Frakkinn sýndi hraðann, komst einn á móti Jan Oblak en skaut framhjá.

Alexis Mac Allister kom þó Liverpool yfir með frábæru marki stuttu eftir það og er staðan 2-1.

Skömmu síðar þurfti Barcola að fara meiddur af velli og virtist hafa meiðst á kálfa. Victor Munoz kom inn í hans stað og Jeremie Frimpong leysti Rio Ngumoha af hólmi.

Liverpool verður að vona að meiðslin séu ekki alvarleg en félagið keypti Barcola frá Paris Saint-Germain fyrir 123 milljónir punda fyrir aðeins nokkrum dögum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.