Fotbolti.net
09.09.26 - 15:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hólmar tekur ákvörðun eftir tímabilið

Er á sínu fimmta tímabili á Hlíðarenda.

Er á sínu fimmta tímabili á Hlíðarenda.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hólmar Örn Eyjólfsson er fyrirliði Vals og er á sínu fimmta tímabili sem leikmaður félagsins. Hann kom til Vals frá Rosenborg og hann spilaði líka sem atvinnumaður á Englandi, í Belgíu, Þýskalandi, Ísrael og Búlgaríu.

Hann er 36 ára og er með lausan samning í haust. Hólmar hefur ekki verið með í síðustu tveimur leikjum liðsins og er ólíklegt að hann spili gegn Þór næsta sunnudag, en hann gæti náð leiknum gegn ÍBV sem er þar á eftir.

Fótbolti.net ræddi við Hólmar í dag.
Tognaði gegn Víkingi
„Skrokkurinn er mjög fínn fyrir utan einn 'hamstring' sem er í smá brasi. Ég tognaði gegn Víkingum fyrir rúmum tveimur vikum og talað er um 3-4 vikur til að ná sér góðum. Það er spurning hvort ég nái að spila fyrir landsleikjahlé, en það er eiginlega pottþétt að ég næ leikjunum eftir það," segir Hólmar.

Reyna að gera það besta úr því sem komið er
Valur ætlaði sér stærri hluti en að enda í neðri hluta Bestu deildarinnar. Hvernig sérð þú lokakaflann?

„Við vorum búnir að sjá fyrir nokkrum vikum að þetta gæti orðið niðurstaðan. Við erum búnir að stilla okkur inn á það hugarfar að keyra á hvern leik fyrir sig og reyna gera það besta úr þessu. Við erum í neðri hlutanum núna og erum ekki öruggir með sætið í deildinni eins og staðan er núna. Við þurfum að nota það sem bensín á bálið að sækja eins góð úrslit og við getum og klárað þetta tímabil á jákvæðan hátt. Eins og við vitum þá tekur þú hlutina með þér inn í næsta tímabil og vilt enda á góðum nótum. Við ætlum að gera gott úr þessu."

Ekki búinn að taka ákvörðun
Talandi um næsta tímabil, hvernig sér framhaldið við þér? Ertu búinn að taka samtöl við Valsarana?

„Ég hef aðeins talað við Valsarana en ég er hreinlega ekki búinn að ákveða mig hvort ég ætli að halda áfram. Ég hef sagt að ég mun taka ákvörðun eftir tímabilið, hvort ég spili áfram eða hvernig það verður. Eins og staðan er núna þá er ég að fókusa á að klára tímabilið vel. Þegar svo rykið er sest þá ætla ég að taka stöðuna og sjá hvort ég vilji taka ár í viðbót eða hvernig það verður."

Mjög ólíklegt að hann fari í HK
Er eitthvað hjá þér sem kitlar að taka ár hjá HK?

„Mér finnst það mjög ólíklegt. Ef ég hætti yrði það af fjölskylduástæðum. Það hefur takmarkað verið af helgarfríum og ekki hægt að fara í sumarfrí með fjölskyldunni, og það er farið að kitla aðeins. Ég held ég myndi ekki taka tímabil með HK, þó að það væri rómantík í því," segir Hólmar sem lék með yngri flokkum HK og tók eitt og hálft tímabil í meistaraflokki áður en hann hélt til West Ham þar sem atvinnumannaferilinn hófst.

Ekki rætt við Dóra
Ef þú heldur áfram, sérðu þá fyrir þér að gera það á Hlíðarenda?

„Ég er ekki búinn að hugsa það mikið út í þetta. Ég ætla klára þetta tímabil og sjá svo hvað gerist."

Hefur þú rætt við Halldór Árnason, verðandi þjálfara Vals, um möguleikann á því að spila með Val næsta tímabil?

„Nei, ég hef ekki talað við hann," segir Hólmar að lokum.

Einhverjar getgátur hafa verið um að Víkingur gæti mögulega leitað til Hólmars ef hann verður ekki áfram hjá Val þar sem Gunnar Vatnhamar var seldur til Danmerkur. Miðað við svör Kára Árnasonar, yfirmanns fótboltamála hjá Víkingi, þá er ekki á döfinni að fá inn miðvörð í vetur, en það gæti svo sem breyst.
Það hefur takmarkað verið hægt að fara í frí með fjölskyldunni og það er farið að kitla aðeins

Það hefur takmarkað verið hægt að fara í frí með fjölskyldunni og það er farið að kitla aðeins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í baráttunni í Evrópuleik í sumar.

Í baráttunni í Evrópuleik í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í leik með HK og í baráttunni við Atla Guðna.

Í leik með HK og í baráttunni við Atla Guðna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við vorum búnir að sjá fyrir nokkrum vikum að þetta gæti orðið niðurstaðan

Við vorum búnir að sjá fyrir nokkrum vikum að þetta gæti orðið niðurstaðan

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Stjarnan22-828
2Valur22-627
3FH22-1221
4Þór22-2821
5KA22-1320
6ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.