09.09.26 - 21:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu atvikið: Stór mistök dómarans í Njarðvík

Gunnar Freyr dæmdi leikinn en átti ekki sinn besta dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórhallur Ísak stálheppinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oumar Diouck var tekinn niður.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Strax á 3. minúutu í leik Njarðvíkur og Þróttar í Lengjudeildarumspilinu kom upp stórt atvik þegar Þórhallur Ísak Guðmundsson, markvörður Þróttar, gerðist brotlegur gegn Oumar Diouck sem var að sleppa í gegn.
Gunnar Freyr Róbertsson, dómari leiksins, dæmdi ekkert. Þórhallur stálheppinn að sleppa þegar hann braut á sóknarmanni Njarðvíkur. „Þetta var bara aukaspyrna og rautt spjald," sagði Jón Þór Hauksson sem lýsti leiknum á Livey ásamt Hirti Hjartarsyni.
„Ég meina þetta er annaðhvort getuleysi eða hugleysi. Ég held að það sé ekkert þar á milli. Það verða einhverjir aðrir að dæma um það en auðvitað sérstakt að á miðvikudegi þegar allir dómarar landsins eru nánast lausir að ég held að svona stór leikur sé settur upp í hendurnar á gríðarlega efnilegum dómara en að einhverju leyti óreyndum dómara," sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, við Fótbolta.net eftir leikinn. Viðtalið má nálgast í spilaranum neðst.

Lestu um leikinn: Njarðvík 0 - 1 Þróttur R.
Magnús Atlason, fréttamaður Fótbolta.net, gaf Gunnari þrjá í einkunn fyrir hans frammistöðu í leiknum.
„Get ekki gefið Gunnari hærri einkunn í dag. Atvikið í upphafi leiks voru klár mistök. Get ekki tjáð mig um vítaköll Njarðvíkur en hann dæmdi illa í báðar áttir. Grænklæddur gaf Hlyni Þórhalls greinilegan olnboga í andlit en ekkert spjald fór á loft. Línan alltof há og alltof lítið gripið inn í," skrifaði Magnús í skýrsluna.
Þróttur fer með eins marks forystu inn í seinni leikinn sem fram fer á PEPSI vellinum í Laugardal klukkan 16:15 á sunnudag. Sigurliðið í einvíginu fer í úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni.

Leikur Njarðvíkur og Þróttar fór af stað í fluggír en eftir rétt rúmar 90 sekúndur komst Oumar Diouck í gegnum vörn gestanna en Þórhallur Ísak í marki Þróttar virtist brjóta á honum, en Gunnar Freyr lét flautuna vera. Hvað finnst ykkur? pic.twitter.com/b9yGCn5Ulw
— Livey (@liveysport) September 9, 2026