Fotbolti.net
09.10.16 - 22:07
Jóhann Ingi Hafþórsson

Hvað sagði Heimir Hallgríms eftir leik?

Auglýsing
Heimir Hallgrímsson á leiknum í dag.

Heimir Hallgrímsson á leiknum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari sat fyrir svörum á fréttamannafundi eftir sigurinn glæsilega gegn Tyrklandi. Hér má sjá punkta sem komu fram á fundinum en upptaka af honum kemur innan tíðar á vefinn.
Um menn sem spiluðu lítið eða ekkert á EM sem komu inn í síðustu tvo leiki:
„Við eigum fullt af leikmönnum sem eru góðir en hafa ekki fengið að spila mikið. Þeir eru búnir að sýna það, í Frakklandi, á æfingum og í vináttuleikjum. Við eigum breiðari hóp en margir halda og það komu margir mjög vel í þetta verkefni.\"

Um frammistöður Birkis Bjarnasonar og Theodórs Elmars:
„Við vorum búnir að hugsa að sú staða gæti komið upp að Aron yrði ekki með. Birkir hefur spilað þessa stöðu áður og gert það vel en hann var sérstaklega góður í dag. Theodór Elmar kom líka mjög vel inn í þetta og það var gaman að gefa fleirum tækifæri.\"

Um hvort það hafi hjálpað í leiknum í kvöld, að vinna Finna eins og við gerðum:
„Að hafa unnið hann á karakter í lokin, sýndi okkur mikið. Munurinn á því sem við vorum að gera fyrstu 80-90 mínúturnar og svo í uppbótartíma. Við ákváðum að byrja á sama stað og við spiluðum uppbótartímann gegn Finnum. Þeir eru góðir að finna svæði en við gáfum þeim engin. Eina sem við óttuðumst var að við myndum ekki ná að halda þessu gangandi í 90 mínútur en menn voru farnir að fá krampa í lokin.\"

Um frammistöðuna í dag
„Varnarleikurinn var mjög aggresífur, allan leikinn. Það var auðvelt að vinna boltann eftir markspyrnur þar sem þeir eru ekki eins hávaxnir og við. Við spiluðum líka glimrandi sóknarleik og vorum klaufar að vera ekki með stærra forskot í hálfleik. Það var svolítið óþægilegt að vera bara 2-0 yfir í hálfleik því þeir þurftu bara eitt mark til að breyta leiknum. Þeir komu til baka gegn Úkraínu í síðasta leik en þá voru þeir 2-0 undir í hálfleik.\"

Um hvort veðrið hafi hjálpað Íslendingum:
„Þetta var gott fótboltaveður og smá gola. Við köllum þetta ekki rok í Vestmannaeyjum.\"

Um Alfreð Finnbogason, Jón Daða og meiðsli Elmars.
„Hann er alltaf líklegur til að skora en hann er svekktastur yfir að hafa ekki skorað meira en eitt mark í þessum leik. Það var mögulega ekki rétt hjá okkur að láta hann byrja seinni hálfleikinn. Jón Daði búinn að vera tæpur og hann spilaði ekki 90 min. Elmar var ekki meiddur, þetta var smá krampi.\"

Um Lars Lagerback:
„Við heyrumst nú reglulega. Hann óskaði mér till hamingju með leikinn. Við heyrumst reglulega og erum fínu sambandi. Hann styður okkur og strákana þó hann sé að vinna hjá sænska landsliðinu,\" sagði Heimir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.