22.07.26 - 23:07
Brynjar Ingi Erluson
Viðræðum Chelsea og Palace miðar áfram

Maxence Lacroix

Mynd: EPA

Maxence Lacroix

Mynd: EPA
Viðræður Chelsea og Crystal Palace um franska miðvörðinn Maxence Lacroix miðar áfram en þetta segir Fabrizio Romano í kvöld.
Chelsea ætlar sér að fá Lacroix, sem hefur farið á kostum með Crystal Palace undanfarin ár.
Hann vann enska bikarinn með liðinu í fyrra og Sambandsdeildina á nýliðnu tímabili.
Fabrizio Romano segir Chelsea vera í stöðugu sambandi við Palace vegna Lacroix og að viðræðum félaganna miði áfram. Talið er að Palace vilji fá um 60 milljónir punda fyrir miðvörðinn.
Chelsea er mjög bjartsýnt á að ganga frá kaupunum í sumarglugganum en Lacroix, sem er 26 ára, er nú í fríi eftir að hafa leikið með franska landsliðinu á HM.
Hann kom við sögu í þremur leikjum á mótinu. Lacroix lék gegn Noregi í riðlakeppninni og síðan síðustu tvo leiki Frakka eftir að William Saliba meiddist á baki.