Fotbolti.net
22.07.26 - 22:59
Brynjar Ingi Erluson

Balotelli sér ekki eftir neinu - „Er með hreina samvisku miðað við viðbjóðinn hjá sumum“

Mario Balotelli

Mario Balotelli

Canon

Mynd: Reuters

Ítalski fótboltamaðurinn Mario Balotelli segist ekki sjá eftir neinu á ferlinum og að öll heimskupörin hafi hjálpað honum að þroskast, bæði sem manneskju og leikmanni.
Balotelli er einn litríkasti knattspyrnumaður 21. aldarinnar og rataði oft í fréttirnar fyrir allt annað en frammistöðu sína inni á vellinum.

Margir muna þegar Balotelli og félagar hans kveiktu í flugeldum á heimili hans í Manchester, aðeins sólarhring fyrir stórleik Manchester City gegn nágrönnunum í United. Eldur kom upp í húsinu og málið rataði í ensku blöðin.

Balotelli skoraði síðan í stórleiknum og fagnaði með ógleymanlegum hætti þegar hann lyfti treyjunni og sýndi skilaboðin á undirtreyjunni: „Af hverju alltaf ég?“

Hann þótti hvorki auðveldasti liðsfélaginn né lærisveinninn en Roberto Mancini var líklega einn fárra þjálfara sem náði almennilega til hans. Mancini þjálfaði Balotelli hjá Inter, Manchester City og ítalska landsliðinu.

Balotelli segist þó ekki sjá eftir neinu sem gerðist á ferlinum.

„Ég gerði margt heimskulegt og var líflegur ungur maður. Þetta var svolítið áreiti en sé ekki eftir neinu því þetta hjálpaði mér að þroskast.“

„Ég er með mjög hreina samvisku miðað við þann viðbjóð sem maður sér sumt fólk gera í dag. Ég hef aldrei sært neinn,“ sagði Balotelli við SportMediaset.

Balotelli segist jafnframt sorgmæddur yfir því að vera enn síðasti leikmaðurinn sem skoraði fyrir Ítalíu á heimsmeistaramóti.

„Það er ekkert til að vera stoltur af. Þetta er mjög sorglegt og allt of mörg ár eru liðin síðan þá,“ sagði Balotelli.

Balotelli leikur í dag með Al Ittifaq í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hann gekk til liðs við félagið í janúar og skoraði sex mörk í tólf leikjum á síðasta tímabili.
Balotelli er síðasti leikmaðurinn til að skora fyrir Ítalíu á HM

Balotelli er síðasti leikmaðurinn til að skora fyrir Ítalíu á HM

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.