22.07.26 - 21:58
Brynjar Ingi Erluson
Juventus horfir til Zirkzee

Joshua Zirkzee gæti verið á förum frá United

Mynd: EPA

Ítalska stórliðið Juventus ætlar að styrkja framlínuna í sumar og hefur sett stefnuna á Joshua Zirkzee, framherja Manchester United.
La Gazzetta dello Sport segir að Juventus sé að gefast upp á að reyna að fá Randal Kolo Muani frá Evrópumeisturum Paris Saint-Germain enda beri mikið á milli félaganna í verðmati á leikmanninum.
Juventus hyggst því snúa sér að Zirkzee hjá Manchester United. Enska félagið er talið reiðubúið að selja hann fyrir 30-35 milljónir punda.
Zirkzee hefur áður verið orðaður við Juventus og raunar reglulega við endurkomu í Seríu A síðan hann gekk til liðs við United frá Bologna árið 2024.
Hollenski landsliðsmaðurinn var í ágætu hlutverki hjá United á sínu fyrsta tímabili. Erik ten Hag fékk hann til félagsins en var rekinn í október.
Zirkzee fékk áfram nokkuð að spila undir stjórn Ruben Amorim en mínútunum fækkaði tímabilið eftir. Hann fékk síðan lítið að spila undir Michael Carrick, sem tók við liðinu í janúar á þessu ári.
United er sagt opið fyrir því að leyfa Zirkzee að fara, hvort sem það verður á láni eða með varanlegum félagaskiptum.
Zirkzee yrði mun ódýrari kostur fyrir Juventus en Kolo Muani þegar kemur að launum. Hann þénar um fjórar milljónir á ári hjá United en árslaun Kolo Muani hjá PSG eru um níu milljónir.