22.07.26 - 22:12
Brynjar Ingi Erluson
Fimm marka sigur hjá Hömrunum

James Ward-Prowse skoraði fyrir West Ham

Mynd: EPA

Hinn 18 ára gamli Mateus Mane skoraði sigurmark Wolves

West Ham United og Wolves undirbúa lífið eftir ensku úrvalsdeildina, en bæði unnu í undirbúningi sínum fyrir komandi tímabil í B-deildinni.
West Ham hefur misst nokkra leikmenn frá því liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Mateus Fernandes var seldur til Tottenham og Callum Wilson yfirgaf félagið þegar samningur hans rann út. Crysencio Summerville er þá á förum til Al Hilal.
Fleiri gætu fylgt í kjölfarið á næstu vikum en nokkrir leikmenn sem hafa verið orðaðir burt frá félaginu komu við sögu í stórsigri dagsins.
Fyrirliðinn Jarrod Bowen var í byrjunarliðinu ásamt Max Kilman, Kyle Walker-Peters, James Ward-Prowse og Taty Castellanos.
Ward-Prowse og Castellanos skoruðu í fyrri hálfleik áður en Lewis Orford, Joshua Ajala og Jett Murphy bættu við mörkum eftir hlé.
West Ham á tvo æfingaleiki eftir áður en keppnistímabilið hefst, gegn Rangers og Magdeburg. Fyrsti mótsleikurinn er gegn Portsmouth í deildabikarnum 8. ágúst en átta dögum síðar mætir liðið Burnley í fyrstu umferð deildarinnar.
Úlfarnir unnu á sama tíma 1-0 sigur á Maidenhead eftir mikla dramatík innan herbúða félagsins undanfarna daga.
Hætta þurfti við æfingu liðsins í gær þegar nígeríski sóknarmaðurinn Tolu Arokodare neitaði að yfirgefa æfingasvæðið. Honum hefur verið meinað að æfa með aðalliðinu þar sem hann er ekki inni í áætlunum Cesar Peixoto, nýs þjálfara Úlfanna.
Hinn 18 ára Mateus Mane skoraði eina mark leiksins gegn Maidenhead eftir að hafa komið snemma inn á sem varamaður.

A win in Hertfordshire ? pic.twitter.com/zUvmI8LKSS
— West Ham United (@WestHam) July 22, 2026
Mane's goal the difference at York Road ?? pic.twitter.com/yYtKiJ1I4o
— Wolves (@Wolves) July 22, 2026