Enski miðjumaðurinn Ruben Loftus-Cheek hefur verið frá vegna meiðsla síðustu fimm mánuði en hann verður þó fljótlega kominn aftur í gírinn.
Loftus-Cheek, sem er 23 ára gamall, sleit hásin í vináttuleik gegn New England Revolution í maí og missti þar af leiðandi af úrslitaleik Evrópudeildarinnar og byrjuninni af þessu tímabili.
Hann hefur verið frá síðustu fimm mánuði en segir nú að hann sé nálægt því að snúa aftur á völlinn í myndbandi sem hann ákvað að deila á Instagram.
Það eru afar góðar fréttir fyrir Frank Lampard og lærisveina hans hjá Chelsea en hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.
Athugasemdir