09.10.26 - 08:00
Elvar Geir Magnússon
Fylgstu með U21 drættinum beint klukkan 9

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Klukkan 9 verður dregið í umspilið fyrir EM 2027 hjá U21 landsliðum og eftir sigur gegn Færeyjum í vikunni tryggði Ísland sér sæti í umspilinu.
Ísland endaði í 2. sæti í sínum undanriðli, á eftir Frakklandi, og ásamt því að þurfa að vinna Færeyjar þurftu strákarnir okkar að treysta á að Frakkland myndi ekki tapa gegn Sviss og það gekk eftir.

Fylgstu með drættinum beint á heimasíðu UEFA
Drátturinn í Nyon í Sviss í dag er opinn, engin styrkleikaröðun, og Ísland getur því mætt hvaða liði sem er af eftirfarandi liðum:
Tékkland, Danmörk, Finnland, Grikkland, Holland, Írland og Tyrkland.
Umspilið verður spilað í næsta mánuði, spilað verður heima og að heiman. Alls 16 lið taka þátt í lokamótinu sem fram fer næsta sumar í Albaníu og Serbíu.