Fotbolti.net
08.10.26 - 21:34
Brynjar Ingi Erluson

Móðir Ronaldo segir þjóðina vanþakkláta - „Kunna ekki að meta hann“

Móðir Ronaldo segir þjóðina vanþakkláta - „Kunna ekki að meta hann“
Canon

Mynd: EPA

Dolores Aveiro, móðir Cristiano Ronaldo, segir portúgölsku þjóðina alltaf hafa sýnt syni sínum vanþakklæti.
Segir Ronaldo aðeins hugsa um eigið skinn - „Spilar þangað til hann er 49 ára“
TENGT EFNI

Segir Ronaldo aðeins hugsa um eigið skinn - „Spilar þangað til hann er 49 ára“

Móðir Ronaldo hefur tjáð sig um atburði síðustu vikna, en hann yfirgaf landsliðið eftir að Jorge Jesus lét hann hita upp gegn Noregi án þess að setja hann inn á.

Málið hefur vakið hörð viðbrögð. Ronaldo hefur verið gagnrýndur fyrir að fara en Jesus og portúgalska fótboltasambandið fyrir meint svik á loforðum við hann.

Ronaldo hefur síðan sent frá sér yfirlýsingu og ætlar áfram að gefa kost á sér í landsliðið. Móðir hans segir hins vegar portúgölsku þjóðina ekki sýna honum það þakklæti sem hann eigi skilið.

„Hann sagði við mig: 'Mamma, ekki hafa áhyggjur. Ég segi sannleikann þegar við erum öll saman.' Ég sagði að það væri allt í lagi, það þyrfti að útkljá þetta.“

„Ég bað hann að halda ró sinni en hann hafði hugann við að taka þessa ákvörðun. Ég studdi hann eins og ég gat en það breytti litlu. Við sjáum til.“

„En þetta er allt í lagi. Hann hefur gefið Portúgal svo mikið og alltaf verið til taks. Hann hefur alltaf verið hetja þjóðarinnar en fær ekki það þakklæti sem hann á skilið. Þau kunna ekki að meta Cristiano. Svona er portúgalska þjóðin.“

„Ég er leið og það er eðlilegt. Þetta var mikið áfall. Sonur minn hefði getað farið út um stóru dyrnar en ákvað að fara út um þær litlu. Það er allt í lagi. Guð sér um það,“
sagði hún.
Móðir Ronaldo segir þjóðina vanþakkláta - „Kunna ekki að meta hann“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.