08.10.26 - 21:58
Brynjar Ingi Erluson
Isak og Gakpo æfðu ekki í dag

Alexander Isak og Cody Gakpo

Mynd: EPA

Alexander Isak og Cody Gakpo

Mynd: EPA
Alexander Isak og Cody Gakpo æfðu ekki með Liverpool í dag og eru báðir mjög tæpir fyrir stórleikinn gegn Manchester City á sunnudag.
Isak meiddist snemma í landsleikjaverkefni Svía og fékk leyfi hjá sænska fótboltasambandinu til að snúa aftur til Liverpool í endurhæfingu. Gakpo meiddist einnig í leik með Hollendingum og þurfti í kjölfarið að draga sig úr hópnum.
Hvorugur sást á æfingu Liverpool í dag og er talið ólíklegt að þeir verði með um helgina.
Betri fréttir bárust af Jeremy Jacquet, sem missti af síðasta leik Frakka í Þjóðadeildinni vegna smávægilegra meiðsla. Hann er orðinn heill og mætti á æfinguna.
Það yrði mikið áfall fyrir Liverpool að vera án Isak og Gakpo, enda hafa þeir byrjað tímabilið vel og verið helsta ógn liðsins fram á við. Isak hefur skorað fjögur mörk í fimm leikjum en Gakpo er með eitt mark og þrjár stoðsendingar.