Fotbolti.net
10.01.22 - 13:46
Elvar Geir Magnússon

Digne búinn að ná samkomulagi við Villa um kaup og kjör

Digne búinn að ná samkomulagi við Villa um kaup og kjör
Canon

Mynd: EPA

Franski bakvörðurinn Lucas Digne heldur áfram að færast nær Aston Villa en hann hefur náð samkomulagi við félagið um kaup og kjör.

Það stefnir allt í að Villa kaupi Digne frá Everton fyrir 25 milljónir punda en samband hans og Rafa Benítez er ekki gott.
Digne hefur einnig verið orðaður við Newcastle og Chelsea en svo virðist sem Steven Gerrard og hans menn hafi unnið samkeppnina um hann.

Sagt er að Villa hafi fyrst boðið Everton að fá Anwar El Ghazi í skiptum en félagið svarað á þá leið að það vildi aðeins selja Digne fyrir beina greiðslu. Villa hafi samþykkt það.

Það er nóg að gera á skrifstofunni á Villa Park en í liðinni viku fékk félagið til sín Philippe Coutinho frá Barcelona.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.