ÍBV er í viðræðum við Val um að fá hollenska markvörðinn Guy Smit á láni út tímabilið, en þetta herma heimildir Fótbolta.net.
Smit er á sölulista hjá Val eftir að hafa misst sæti sitt til Frederik Schram á nýliðinni leiktíð.
Dr. Football greindi frá því í nóvember að Valur hefði boðið ÍBV að fá Smit í skiptum fyrir Eið Aron Sigurbjörnsson eftir tímabilið en Eyjamenn höfnuðu því tilboði.
ÍBV hefur þó enn mikinn áhuga á að fá Smit til félagsins og samkvæmt heimildum Fótbolta.net er félagið í viðræðum við Val um að fá Smit á láni út tímabilið.
Guðjón Orri Sigurjónsson spilaði átján leiki í rammanum hjá ÍBV á síðasta tímabili en þeir Halldór Páll Geirsson og Jón Kristinn Elíasson vörðu einnig mark liðsins.
Þetta yrði þriðja félagið sem Smit spilar fyrir á Íslandi á eftir Val og Leikni.
Athugasemdir