Fotbolti.net
18.09.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Trent, Palmer og Rio í enska landsliðshópnum

Rio Ngumoha.

Rio Ngumoha.

Canon

Mynd: EPA

Trent Alexander-Arnold og Cole Palmer eru í enska landsliðshópnum fyrir komandi landsleikjaglugga. Þeir þurftu að bíta í það súra epli að fara ekki með á HM í sumar en Thomas Tuchel velur þá núna.

Tuchel mun sitja fyrir svörum á fréttamannafundi á eftir og útskýra þá val sitt nánar en England er að fara að spila gegn Spáni, Króatíu og tvo leiki gegn Tékklandi í Þjóðadeildinni í þessum langa landsleikjaglugga sem er handan við hornið.

Alex Scott hjá Bournemouth og Rio Ngumoha hjá Liverpool eru verðlaunaðir fyrir góða frammistöðu með því að fá sæti í hópnum. Meðal þeirra sem eru ekki valdir eru Phil Foden, Noni Madueke og Morgan Gibbs-White.
Markverðir: Jordan Pickford (Everton), Jason Steele (Brighton), James Trafford (Leeds United)

Varnarmenn: Trent Alexander-Arnold (Real Madrid), Jarrad Branthwaite (Everton), Trevoh Chalobah (Como), Marc Guehi (Manchester City), Lewis Hall (Newcastle), Ezri Konsa (Arsenal), Tino Livramento (Newcastle), Nico O'Reilly (Manchester City), Jarell Quansah (Bayer Leverkusen)

Miðjumenn: Elliot Anderson (Manchester City), Jude Bellingham (Real Madrid), Myles Lewis-Skelly (Arsenal), Kobbie Mainoo (Manchester United), Cole Palmer (Chelsea), Declan Rice (Arsenal), Alex Scott (Bournemouth)

Sóknarmenn: Harry Kane (Bayern Munich), Dominic Calvert-Lewin (Leeds United), Eberechi Eze (Arsenal), Anthony Gordon (Barcelona), Rio Ngumoha (Liverpool), Marcus Rashford (Manchester United), Morgan Rogers (Chelsea), Bukayo Saka (Arsenal)
Thomas Tuchel.

Thomas Tuchel.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.