Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. mars 2017 12:44
Magnús Már Einarsson
Ármann Smári leggur skóna á hilluna
Ármann Smári Björnsson.
Ármann Smári Björnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ármann fagnar marki sínu gegn Norður-Írum árið 2007.
Ármann fagnar marki sínu gegn Norður-Írum árið 2007.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Ármann Smári Björnsson fyrirliði ÍA til margra ára hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og mun ekki spila fyrir liðið í sumar. Hinn 36 ára gamli Ármann Smári meiddist illa undir lok síðustu leiktíðar þegar hann sleit hásin í leik gegn KR.

Hann var staðráðinn í því að snúa aftur út á völlinn í sumar, en hefur nú tekið þá ákvörðun um að láta staðar numið.

„Það hefur verið frábært að spila fyrir ÍA. Það er eiginlega ótrúlegt og erfitt að lýsa því. Þetta er stórt félag og bærinn snýst allur um þetta. Það eru allir með,“ segir Ármann Smári um ferilinn hjá ÍA.

Ármann er uppalinn hjá Sindra á Höfn í Hornafirði en hann gekk ungur til liðs við Val. Ármann spilaði síðan með FH áður en hann fór út í atvinnumennsku þar sem hann lék með Brann í Noregi og Hartlepool á Englandi.

Á ferli sínum spilaði Ármann sex landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði eitt mark, gegn Norður-Írum árið 2007. Í þeim leik spilaði hann í fremstu víglínu en þar spilaði hann á tímabili á ferli sínum.

Ármann Smári gekk til liðs við ÍA fyrir leiktíðina 2012 og hefur staðið í vaktina í miðju varnarinnar í fimm leiktíðir. Einnig hefur hann verið fyrirliði liðsins síðan sumarið 2014. Ármann skoraði ellefu mörk í 169 leikjum með ÍA.

„Ármann Smári hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Skagamanna undanfarin ár og því er mikill missir af honum á vellinum," segir í tilkynningu frá ÍA.

„Sem dæmi má nefna að hann var valinn leikmaður árs­ins 2016 hjá Morg­un­blaðinu í Pepsi-deild karla í knatt­spyrnu en einnig var hann valinn leikmaður ársins af stuðningsmönnum liðsins eftir síðustu leiktíð. Knattspyrnufélag ÍA þakkar Ármanni fyrir ómetanlegt framlag á spennandi tímum hjá félaginu og óskar honum alls hins besta í framtíðinni."

Skagamenn sömdu í síðustu viku við pólska varnarmanninn Robert Menzel og hann á að fylla skarð Ármanns í sumar. Arnór Snær Guðmundsson, sem hefur leikið við hlið Ármanns í vörninni, er í skóla í Bandaríkjunum en hann kemur heim í vor. Í vetur hafa Gylfi Veigar Gylfason og Hafþór Pétursson spilað mest í hjarta varnarinnar hjá ÍA.
Athugasemdir
banner
banner