Stjórn Chelsea hefur haldið neyðarfund eftir að tilkynnt var að eigandi félagsins, Roman Abramovich, væri kominn á refsilista Bretlands og eignir hans frystar.
Félagið hefur óskað eftir ítarlegum upplýsingum um hvað það má og hvað það má ekki í ljósi stöðunnar. Félagið má ekki selja miða eða varning né semja við leikmenn.
Abramovich má ekki selja félagið en talið er líklegt að það breytist, með þeim skilyrðum að hann fái ekki krónu í sinn vasa. Mikill áhugi er á að eignast félagið.
Staða Chelsea er algjörlega fordæmalaus og fótboltayfirvöld vinna á fullu að fá ýmis mál á hreint. Stuðningsmannafélag Chelsea hefur gefið út yfirlýsingu vegna málsins og styrktaraðilar skoða sín mál. Þar á meðal 'Three' sem er framan á treyjum liðsins.
Chelsea má ekki gera nýja samninga svo framtíð Antonio Rudiger, Andreas Christensen og fyrirliðans Cesar Azpilicueta eru í mikilli óvissu. Chelsea getur ekki selt fjölmarga leikmenn sem þeir eru með á lánssamningum annars staðar. Þar á meðal Armando Broja sem hefur vakið athygli hjá Sothampton.

Allt um mál Chelsea og Abramovich
09:44 Abramovich á refsilista Bretlands og eignir frystar - Má ekki selja Chelsea
10:57 Ráðherra: Gætum þess að Chelsea hljóti ekki óþarfa skaða
11:49 Skelfilegar afleiðingar fyrir Chelsea - Verður ekki félagið sem við höfum þekkt
12:22 Brentford óskar eftir svörum
Athugasemdir