2. deildarlið Vestra hefur fengið markmann til sín fyrir sumarið.
Um er að ræða hinn 32 ára Ítala, Giacomo Ratto sem kemur til Vestra frá liði Victoria Wanderers í Möltu.
Um er að ræða hinn 32 ára Ítala, Giacomo Ratto sem kemur til Vestra frá liði Victoria Wanderers í Möltu.
Giacomo Ratto á langan feril að baki um nánast alla heim og hefur mikla reynslu. Á ferli sínum hefur hann leikið til að mynda í Sviss, Panama, Nicaragua, Mongolíu og Fiji.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem íslensk félög sýna Ratto áhuga. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa félög bæði í Inkasso og 2. deild áður reynt að fá markvörðinn til sín en án árangurs.
Hann vann til bronsverðlauna sem aðalmarkvörður í bikarkeppninni í Mongolíu og var að spila í efstu deild í Möltu.
Vestri var hársbreidd frá því að vinna sig upp í Inkasso-deildina á síðasta tímabili.
Fyrsti leikur Vestra í 2. deildinni í sumar er gegn Selfossi laugardaginn 4. maí en liðið mætir Víði Garði í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins næstkomandi laugardag.
Athugasemdir