Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. apríl 2019 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Nótt Jónsdóttir aftur í FH (Staðfest)
Nótt er komin aftur í FH.
Nótt er komin aftur í FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nótt Jónsdóttir er hefur skrifað undir tveggja ára samning við uppeldisfélagið sitt, FH.

Nótt kemur frá Stjörnunni en hún hefur verið samningsbundin Garðarbæjarliðinu síðustu tvö ár. Síðasta sumar var hún þó á láni hjá ÍR og spilaði alls átta leiki fyrir liðið.

Leikmaðurinn á að baki 36 meistaraflokksleiki en hún hefur í þeim skorað fjögur mörk.

„Það er okkur FH-ingum ánægjuefni að Nótt hafi ákveðið að koma aftur til FH til þess að spila með liðinu í Inkasso deildinni næsta sumar. Það mun án efa hjálpa okkur við að ná markmiði okkar um að vinna aftur sæti í úrvalsdeildinni næsta sumar. Velkomin heim Nótt," segir á Facebook-síðu FH-inga.
Athugasemdir
banner
banner
banner