Fotbolti.net
10.04.22 - 23:05
Sverrir Örn EinarssonSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Halldór Smári: Vorum miklu betra liðið ellefu á móti ellefu

Auglýsing
Halldór Smári: Vorum miklu betra liðið ellefu á móti ellefu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var erfiður leikur en mjög góður af okkar hálfu. Ellefu á móti ellefu fannst mér við vera mikið betri og tíu á móti ellefu var þetta spurning um að vera þéttir. Við gerðum það og sýndum að við getum bæði verið geggjað sóknarlið og geggjað varnarlið," sagði Halldór Smári Sigurðsson, varnarmaður Víkings, eftir sigur á Breiðabliki í Meistarakeppni KSÍ.

Víkingar misstu mann af velli um miðbik seinni hálfleiks þegar Pablo Punyed fékk að líta sitt annað gula spjald.
„Arnar er geggjaður að setja upp leiki, sýndi það í dag og það var fátt sem kom okkur á óvart."

„Ég held að þetta hafi verið fullkominn leikur til að klára undirbúningstímabilið. Við förum bara algjörlega klárir inn í mótið og snilld að vinna þennan síðasta leik."


Í lok viðtals, sem má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan var Halldór spurður út í nýju treyjurnar hjá Víkingi en hann átti þátt í hönnun þeirra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.