Hetja HK var í 4. deild í fyrra - „Hélt að hann myndi grípa boltann“
Auglýsing

Atli skoraði sigurmark HK í lokin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli skoraði sigurmark HK í lokin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er bara draumur," segir Atli Þór Jónasson sem var hetja HK í ótrúlegum 4-3 útisigri gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks í fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Magnaður leikur.
„Ég hef aldrei lent í svona áður. Þetta var minn fyrsti leikur í Bestu deildinni og sturlað að klára hann svona."
Atli, sem er tvítugur, kom inn af bekknum og skoraði sigurmarkið. Hann viðurkennir að hafa búist við því að Anton Ari í marki Blika myndi verja skot sitt.

„Ég sagði við sjálfan mig að ég myndi koma inn og klára leikinn fyrir okkur og ég gerði það. Ég hélt að hann væri að fara að grípa boltann allan daginn, svo missir hann boltann í gegnum klofið," segir Atli.
Atli kom til HK í vetur frá Hamri í Hveragerði þar sem hann lék í 4. deildinni í fyrra og var iðinn við markaskorun. Óvænt hetja í rosalegum Kópavogsslag í kvöld.
Atli kom til HK í vetur frá Hamri í Hveragerði þar sem hann lék í 4. deildinni í fyrra og var iðinn við markaskorun. Óvænt hetja í rosalegum Kópavogsslag í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir