Fotbolti.net
03.07.26 - 03:23
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu markið: Stórkostlegur undirbúningur hjá stjörnu Sviss

Johan Manzambi er ein af stjörnum heimsmeistaramótsins

Johan Manzambi er ein af stjörnum heimsmeistaramótsins

Canon

Mynd: EPA

Johan Manzambi heldur áfram að stela senunni á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó, en hann var að leggja upp opnunarmarkið í landsleik Sviss og Alsír í 32-liða úrslitum.
Manzambi hefur verið í aðalhlutverki síðan hann kom inn af bekknum í öðrum leik Sviss á HM. Þar skoraði hann tvö mörk og kom að einu til viðbótar í 4-1 sigri á Bosniu.

Í síðasta leik skoraði hann og lagði upp gegn Kanada og nú er hann kominn með stoðsendingu gegn Alsir.

Manzambi tók þá á rás upp vinstri vænginn, fór framhjá varnarmanninum og beið alveg fram á síðustu stundu með að senda boltann fyrir markið. Þar var Breel Embolo mættur og þurfti bara að hitta boltann til að koma honum í netið.

Samkvæmt enskum miðlum er Newcastle United að ganga frá kaupum á Manzambi frá Freiburg, en stjórnarmenn enska félagsins hljóta að svitna aðeins núna. Áhuginn frá öðrum liðum eykst með hverjum leiknum sem hann spilar.

Staðan er 1-0 þegar rúmar tuttugu mínútur hafa verið spilaðar.

Sjáðu markið og stoðsendinguna hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.