Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 10. júní 2019 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Buffon sagður í viðræðum við uppeldisfélag sitt
Mynd: Getty Images
Gianluigi Buffon er í viðræðum við Parma. Þetta segir ítalski fjölmiðillinn Gazzetta dello Sport.

Hinn 41 árs gamli Buffon mun ekki halda áfram hjá Paris Saint-Germain. Hann hafnaði tilboði frá franska stórliðinu og er væntanlega á leið aftur til Ítalíu.

Það yrði mjög skemmtilegt að sjá Buffon fara aftur til Parma. Þar hóf þessi magnaði markvörður feril sinn.

Hann lék með Parma til 2001 áður en hann gekk í raðir Juventus. Hann spilaði með Juventus þar til 2018.

Parma hefur gengið í gegnum margt og mikið síðan Buffon kvaddi félagið 2001. Liðið varð gjaldþrota 2015 og þurfti að byrja upp á nýtt í ítölsku D-deildinni. Parma er komið aftur upp í Seríu A og hafnaði í 14. sæti á nýliðnu tímabili.
Athugasemdir
banner