Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 10. júní 2021 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Manchester United búið að bjóða í Sancho
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur lagt inn fyrsta tilboð sumarsins í vængmanninn Jadon Sancho hjá Dortmund. United hefur lengi haft augastað á Sancho en Dortmund vill fá væna summu fyrir kappann.

Erlendir miðlar greina frá því að Sancho hafi þegar náð samkomulagi um kaup og kjör hjá United en félögin hafi ekki náð saman varðandi kaupverð.

Samkvæmt heimildum Bild hljóðar tilboð United upp á 69 milljónir evra. Dortmund er sagt vilja fá 90 milljónir evra fyrir Sancho sem varð 21 árs í mars.

Sancho er þessa stundina í fullum undirbúningi fyrir fyrsta leik Englands á EM en England mætir Króatíu á sunnudag í fyrsta leik sínum á mótinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner