Barcelona er að festa kaup á hinum 18 ára gamla Hamza Abdelkarim. Fabrizio Romano greinir frá þessu.
Abdelkarim er egypskur sóknarmaður en hann er á láni hjá Barcelona frá Al Ahly í heimalandinu.
Abdelkarim er egypskur sóknarmaður en hann er á láni hjá Barcelona frá Al Ahly í heimalandinu.
Romano segir að Barcelona muni borga eina og hálfa milljón evra fyrir hann auk viðbótargreiðslna.
Abdelkarim gekk til liðs við Barcelona á láni í janúar og hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína með varaliði félagsins. Hann er í HM hópi Egypta.


