Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 12:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stoppaði stutt í Bandaríkjunum: Allir máttu vera með byssu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukur Örn Brink, leikmaður Stjörnunnar, fór til Bandaríkjanna í ágúst í fyrra. Hann hóf háskólanám í Dayton í Ohio-fylki.

Hann stoppaði hins vegar stutt við vestanhafs og var mættur aftur í leikmannahóp Stjörnunnar áður en tímabilið kláraðist.

Fótbolti.net ræddi við Hauk í gær.

„Ég ákvað að prófa að fara til Bandaríkjanna eftir að vera búinn að spá í því lengi, en ég kom svo heim eftir sex vikur," segir Haukur.

„Ég fór í skóla í Dayton Ohio og ég valdi hann því hann var hátt skrifaður fótboltalega, ég gerði það án þess að fara fyrst út og skoða aðstæður."

„Þegar ég mætti komst ég að því að aðstæður þarna voru alls ekki eins og þær höfðu litið út fyrir að vera og staðan í þessum hluta Bandaríkjanna er ekki góð núna, fátækt mikil og ég upplifði smá menningarsjokk. Allir máttu vera með byssu þarna og á þessum sex vikum var ég búinn að lenda í því tvisvar að skotið var úr byssum við háskólasvæðið og heimili okkar þar sem nemendur voru."

„Svo frétti ég einnig að það hefði verið skotárás á háskólasvæðið stuttu eftir að ég flutti heim þar sem nemendur særðust og búið er að banna samkomur í skólanum. Ég hef ekki áhuga á að búa og æfa í slíkum aðstæðum."

„Í stuttu máli þá var þetta bara alls ekki fyrir mig og ég sé ekki eftir því að hafa komið heim og ég hvet bara alla þá sem eru að flytja til Bandaríkjanna að skoða staðsetninguna vel því þetta er eflaust mjög góð upplifun ef þú ert á góðum stað,"
segir Haukur.
Slapp
banner