Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 10. júlí 2020 14:35
Magnús Már Einarsson
Gilmour frá keppni í þrjá til fjóra mánuði
Mynd: Getty Images
Billy Gilmour, miðjumaður Chelsea, verður frá keppni næstu þrjá til fjóra mánuðina vegna meiðsla á hné.

Gilmour meiddist eftir árekstur við Luka Milivojevic, miðjumann Crystal Palace, í leik liðanna í vikunni.

Gilmour meiddist á 19. mínútu en spilaði alveg þar til undir lokin þegar Jorginho leysti hann af hólmi.

Eftir leik kom alvarleiki meiðslanna í ljós en Gilmour fór í aðgerð í dag.

Hinn 19 ára gamli Gilmour hefur spilað ellefu leiki með Chelsea á tímabilinu og vakið athygli fyrir góða innkomu.
Athugasemdir
banner
banner