10.07.22 - 10:20
Ívan Guðjón Baldursson
Haaland fær níuna frá Gabriel Jesus (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Norski sóknarmaðurinn Erling Braut Haaland mun klæðast treyju númer 9 hjá Manchester City.
Haaland fær treyjuna frá Gabriel Jesus sem var keyptur til Arsenal á dögunum fyrir 45 milljónir punda.
Haaland gekk í raðir Man City fyrr í sumar en þurfti að bíða eftir að Jesus yrði seldur til að taka níuna.
Haaland mun leiða breytta sóknarlínu City í haust sem verður án Jesus og Raheem Sterling en Argentínumaðurinn Julian Alvarez gæti fengið gott hlutverk.
It's official! 9️⃣🤩@ErlingHaaland | #ManCity pic.twitter.com/XR1KTub0sZ
— Manchester City (@ManCity) July 9, 2022
