10.07.22 - 11:10
Ívan Guðjón Baldursson
Jakob Franz lánaður til FC Chiasso í Sviss (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét


Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Ítalska félagið Venezia er búið að lána tvo táninga til svissneska félagsins FC Chiasso sem leikur í þriðju efstu deild í Sviss.
Annar þeirra er hinn íslenski Jakob Franz Pálsson sem er hægri bakvörður að upplagi en getur einnig spilað vinstra megin.
Jakob Franz er Akureyringur, uppalinn hjá Þór en hefur búið í Feneyjum síðustu tvö ár.
Hinn 19 ára gamli Jakob var fastamaður í byrjunarliðinu hjá unglingaliði Venezia á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu í 27 leikjum.
Táningurinn á 19 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og gengur í raðir Chiasso 15. júlí.
