Fotbolti.net
10.07.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Jean Michael Seri kominn til Hull (Staðfest)

Jean Michael Seri kominn til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Fulham

Miðjumaðurinn Jean Michaël Seri er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Hull City sem leikur í Championship deildinni.

Þessi miðjumaður, sem á 42 landsleiki að baki fyrir Fílabeinsströndina, var á sínum tíma orðaður við félög á borð við Barcelona og PSG en endaði á að skipta til Fulham.

Hann átti erfitt uppdráttar í enska boltanum og lék að lokum bara tvö tímabil með Fulham og var lánaður út til Galatasaray og Bordeaux hin tvö árin.

Seri, sem er 30 ára gamall, rann út á samningi um mánaðarmótin og hefur valið sér Hull sem næsta áfangastað.

Hann spilaði 34 leiki með Fulham er liðið vann Championship deildina og kom sér aftur upp í ensku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð.

Seri hóf ferilinn með Pacos de Ferreira í Portúgal og var seldur til Nice fyrir eina milljón evra. Hann naut sín í franska boltanum en var svo seldur til Fulham fyrir 30 milljónir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.