Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. ágúst 2022 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Winks og Reguilon æfa utan hóps - Ndombele kemst ekki í lokahópinn
Mynd: Getty Images

Tottenham er enn að reyna að losa sig við nokkra leikmenn eftir að hafa lánað Joe Rodon út og selt Steven Bergwijn og Cameron Carter-VIckers.


Harry Winks og Sergio Reguilón æfa enn utan hóps hjá Tottenham og eru báðir á sölulista en engin hæfileg tilboð hafa borist.

Tanguy Ndombele og Giovani Lo Celso eru einnig til sölu og munu ekki komast í 25 manna lokahóp Antonio Conte hjá Tottenham. Þeir eiga báðir mikið af lánstilboðum á borðinu en ekkert kauptilboð sem stjórnendum Spurs þykir ásættanlegt. Villarreal og Napoli eru meðal félaga sem hafa spurst fyrir um báða þessa sóknarþenkjandi miðjumenn.

Japhet Tanganga tók þátt í leikjum á undirbúningstímabilinu en hann er í miklu aukahlutverki og er félagið opið fyrir að lána hann út eða selja hann.


Athugasemdir
banner
banner
banner