Best í Mjólkurbikarnum: Leikur sem ég mun aldrei gleyma
Auglýsing

Sigdís Eva Bárðardóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigdís Eva í leik með Víkingum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigdís Eva Bárðardóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á morgun fer fram úrslitaleikurinn í Mjólkurbikar kvenna þegar Víkingur, topplið Lengjudeildarinnar, mætir Breiðabliki, toppliði Bestu deildarinnar.
Í dag mætti besti leikmaður undanúrslitanna í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fékk verðlaun frá Mjólkursamsölunni. Sigdís Eva Bárðardóttir var besti leikmaður undanúrslitanna en hún skoraði bæði mörkin í 1-2 sigri Víkinga gegn FH í Kaplakrika.

„Það er leikur sem ég mun aldrei gleyma, leikurinn sem kom okkur í úrslitaleikinn," sagði Sigdís Eva við Fótbolta.net í dag þegar hún ræddi um leikinn gegn.
„Það er geggjað fyrir liðið að komast í úrslit og við erum tilbúnar... eins og við höfum sagt áður þá var bikarinn bara plús, þetta var kannski ekki alveg í planinu en það er frábært að við séum komnar svona langt."
Elskar að spila í Mjólkurbikarnum
Sigdís Eva, sem er aðeins 16 ára gömul, hefur farið á kostum með Víkingum í sumar en hún er búin að gera 15 mörk í 15 leikjum í deild og bikar. Þar af hafa komið átta mörk í fimm leikjum í Mjólkurbikarnum. Hún gerði einnig tvennu þegar Víkingar lögðu Selfoss í átta-liða úrslitunum. Henni fannst gaman að spila í þessari keppni, augljóslega.
Sumarið er búið að vera virkilega skemmtilegt í Víkinni. „Þetta er búið að vera frábært sumar. Karlarnir eru líka efstir í sinni í deild og í undanúrslitum í bikar. Það er æðislegt fyrir Víking."
Sigdís hefur verið að glíma við höfuðmeiðsli en hún segist klár í leikinn á morgun. Hún vil byrja leikinn en segir lið Víkinga vera sterkt. „Maður vonast alltaf til að byrja en við erum með það sterkan hóp að það geta allar byrjað."
Getur Víkingur komið Breiðabliki á óvart? „Ég myndi segja það. Við erum vel skipulagt lið og við getum komið á óvart."
Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.
Sjá einnig:
16-liða úrslit: Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (Stjarnan)
8-liða úrslit: Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)