Fotbolti.net
10.08.23 - 21:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar frá: Þróttheimar

Nik svekktur: Edda myndi klára þessi færi allan daginn

Auglýsing
Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar.

Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, var skiljanlega verulega svekktur eftir 1-1 jafntefli gegn ÍBV í Bestu deildinni í kvöld. Þróttur lenti undir snemma en náði að jafna í byrjun seinni hálfleiks. Þróttarar voru með mikla yfirburði í leiknum en tókst ekki að landa sigrinum.

„Ég sagði fyrir leikinn að það yrðu engar afsakanir, og við getum bara kennt sjálfum okkur um," sagði Nik í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Við byrjuðum leikinn afar illa og skoruðum sjálfsmark. Þetta var óásættanlegt, og á hinum endanum líka. Við klúðruðum færum fyrir opnu marki og það er ekki ásættanlegt. Við sköpuðum nægilega mörg færi til að vinna leikinn."

Nik býst við því að Þróttur hafi verið með þrjá eða fjóra í xG í þessum leik. „Ég veit ekki, þetta eru mikil vonbrigði."

„Við æfum okkur mikið í að klára færin, kannski þurfum við að búa til einhvers konar pressu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist á tímabilinu. Því miður erum við ekki með markaskorara sem er að fara að skora tíu eða tólf mörk. Vonandi finnum við einhvern leikmann."

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir er farin út í háskóla og verður ekki meira með á tímabilinu. Nik segir að Þróttur sé að leita að leikmanni í hennar stað, leikmanni sem getur skorað mörk.

„Kannski fæ ég Eddu (Garðarsdóttur) inn í liðið. Hún myndi klára þessa færi allan daginn," sagði Nik en Edda er aðstoðarþjálfari Þróttar.

Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.