Fotbolti.net
10.09.17 - 19:40
Elvar Geir Magnússon

Halli Björns verulega ósáttur: Hvað á ég að gera?

Auglýsing
Haraldur Björnsson.

Haraldur Björnsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Haraldur Björnsson markvörður Stjörnunnar var allt annað en sáttur eftir 2-2 jafntefli gegn Víkingi Reykjavík í kvöld og fór ekki leynt með pirringinn.
„Það bætist bara í þetta forskot Vals í kvöld. Ég efast um að Blikar verði mikil fyrirstaða,\" segir Haraldur.

Hann var mjög ósáttur við Gunnar Jarl Jónsson dómara og vildi meina að brotið hafi verið á sér þegar Víkingar komust í 2-1 í upphafi seinni hálfleiks.

„Hvað á ég að gera? Ég er að bakka... ég er að horfa á boltann. Hár bolti. Svo kemur maður í hliðina á mér, hann snertir ekki boltann. Gunnar segir það. Hann fer bara í hliðina á mér. Hvað á ég að gera?\"

Haraldur bauðst svo til að leika atriðið eftir með fréttamanni.

„Eitt stig gefur ekki neitt eiginlega.\"

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.