Fotbolti.net
10.09.22 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Van der Sar skýtur á Ten Hag: Hefur ekki hjálpað okkur

Edwin van der Sar

Edwin van der Sar

Canon

Mynd: Getty Images

Edwin van der Sar fyrrum markvörður Manchester United gerði nýjan samning við Ajax og verður framkvæmdarstjóri félagsins til ársins 2025.

Það hafa orðið miklar mannabreytingar hjá Ajax í sumar en eins og flestir vita yfirgaf Erik ten Hag félagið til að gerast stjóri Manchester United.

Ryan Gravenberch, Sebastien Haller, Nicolas Tagliafico og Noussair Mazraoui yfirgáfu allir félagið í sumar og þá fékk Ten Hag þá Lisandro Martinez og Antony til United.

Van der Sar er ekki hrifinn af þessari þróun.

„Þetta virðist alltaf verða örlög Ajax. Við þróum frábæra leikmenn, stundum unga leikmenn og ef þeir vilja taka næsta skref fara þeir til Englands, Þýskalands eða Spánar," sagði Edwin van der Sar.

„Auðvitað vissum við að við vorum að missa frábæran stjóra í Erik ten Hag og já hann er ekki að hjálpa okkur því hann tók tvo af okkar bestu mönnum."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.