Fotbolti.net
10.09.23 - 19:11
Elvar Geir Magnússon

Pjanic spókaði sig um í Reykjavík - Gagnrýndur fyrir holdafar sitt

Miralem Pjanic í morgungöngu í Reykjavík.

Miralem Pjanic í morgungöngu í Reykjavík.

Canon

Mynd: Instagram

Icelandair
Annað kvöld tekur Ísland á móti Bosníu og Hersegóvínu í undankeppni EM. Landslið Bosníu æfði á Laugardalsvelli í kvöld en meðal þekktustu leikmanna liðsins er Miralem Pjanic.

Hann birti mynd af sér á Instagram í morgun þar sem hann sést vel klæddur í morgungöngu í Reykjavík.

Pjanic er 33 ára og lék frábærlega á Ítalíu með Roma og Juventus á árunum 2011-2020. Hann var svo hjá Barcelona áður en hann gekk í raðir Sharjah FC í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á síðasta ári.

Þessi hæfileikaríki miðjumaður þykir þó ekki í góðu standi í augnablikinu og hefur fengið talsverða gagnrýni í heimalandi sínu, bæði í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.

Pjanic var í byrjunarliði Bosníu í 2-1 sigrinum gegn Liechtenstein á föstudaginn. Hann lék ekki með í 3-0 sigri Bosníu gegn Íslandi fyrr á þessu ári, vegna meiðsla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.