Fotbolti.net
10.09.26 - 15:19
Elvar Geir Magnússon

Fyrirliði Aftureldingar framlengir daginn fyrir úrslitaleikinn

Aron Elí lyftir Lengjudeildarbikarnum.

Aron Elí lyftir Lengjudeildarbikarnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mjólkurbikarinn
Fyrirliði Aftureldingar, Aron Elí Sævarsson, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning sem gildir út árið 2028.

Þessi tíðindi eru tilkynnt á samfélagsmiðlum Aftureldingar daginn áður en liðið mætir Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.
Aron Elí: Fáum þetta sem kirsuberið á toppinn
TENGT EFNI

Aron Elí: Fáum þetta sem kirsuberið á toppinn

Aron Elí kom til Aftureldingar frá Val árið 2020 og varð fljótt lykilmaður í liðinu. Þessi öflugi vinstri bakvörður leiddi lið Aftureldingar upp úr Lengjudeildinni árið 2024 og á dögunum tók hann við bikarnum þegar Afturelding vann Lengjudeildina í ár.

Samtals hefur Aron spilað 165 leiki í deild og bikar með Aftureldingu og skorað í þeim 21 mark.

„Afturelding fagnar því að Aron hafi framlengt samning sinn og spennandi verður að sjá hann taka næstu skref með liðinu næstu árin!" segir í tilkynningu Aftureldingar.


Fyrirliði Aftureldingar framlengir daginn fyrir úrslitaleikinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Elí: Fáum þetta sem kirsuberið á toppinn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.