Fotbolti.net
10.09.26 - 15:48
Kári Snorrason

Líkleg byrjunarlið úrslitaleiksins - Vindurinn á kantinum og Ívar áfram í kuldanum?

Skoraði tvö af kantinum gegn Stjörnunni.

Skoraði tvö af kantinum gegn Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mjólkurbikarinn
Breiðablik og Afturelding mætast annað kvöld á Laugardalsvelli í úrslitaleik Mjólkurbikarsins og þar kemur í ljóst hvort liðanna fylgir Víkingi, KR og Fram í Evrópukeppni næsta sumar.

Ívar Orri Kristjánsson dómari flautar til leiks á slaginu 19:00. Áhugavert verður að sjá hvernig byrjunarliðin verða er þau verða tilkynnt klukkutíma áður.
Horfðu á upphitunarþátt Mjólkurbikarsins
TENGT EFNI

Horfðu á upphitunarþátt Mjólkurbikarsins

Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 0 Breiðablik
Líklegt byrjunarlið Breiðabliks
Við spáum því að Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks geri eina breytingu á byrjunarliði sínu frá 2-1 tapi liðsins gegn KA á Akureyri um síðustu helgi.

Búist er við að Höskuldur Gunnlaugsson snúi aftur í lið Breiðabliks á kostnað Gabríels Snæs Hallssonar. Höskuldur hefur verið að glíma við krónísk bakmeiðsli síðastliðið ár og hefur því aðeins byrjað ellefu leiki í Bestu deildinni hingað til.

Þá spáum við því að Ívar Örn Árnason verði áfram á bekknum en hann var ónotaður varamaður gegn KA. Ívar þekkir þó að úrslitaleiki Mjólkurbikarsins vel en hann fór í tvígang með KA á Laugardalsvöll og lyfti bikarmeistaratitlinum 2024.

Viktor Karl Einarsson er sá sem er hvað næst byrjunarliðinu, þá er Aron Bjarnason að snúa til baka eftir meiðsli og gæti verið kostur á kantinum.



Líklegt byrjunarlið Aftureldingar
Í liði Aftureldingar vantar einn þeirra hættulegasta mann, Elmar Kára Enesson Cogic, sem hefur verið mikið frá vegna meiðsla á tímabilinu.

Maðurinn sem hefur fyllt í hans skarð að undanförnu, Haukur Örn Brink, er tæpur vegna meiðsla og spáum við honum því á bekknum.

Þeir eru þó ekki með neinn aukvisa sem getur leyst þá báða af hólmi og við tippum því á að Birkir Már Sævarsson byrji á hægri kanti. Hann átti frábæran leik á kantinum gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins, þar sem hann skoraði tvö mörk.

Kristinn Freyr Sigurðsson er sömuleiðis í líklegu byrjunarliði Mosfellinga og á hann möguleika á að vinna sinn þriðja bikarmeistaratitil.

Jón Vignir Pétursson er tæpur vegna meiðsla og spáum við því að hann byrji á bekknum. Sævar Atli Hugason er sá sem gerir sterkasta tilkallið að koma inn í byrjunarliðið.

Fyrirliði Blika er í líklegu byrjunarliði.

Fyrirliði Blika er í líklegu byrjunarliði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívar vann bikarmeistaratitilinn með KA fyrir tveimur árum.

Ívar vann bikarmeistaratitilinn með KA fyrir tveimur árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Magnús Már og Ólafur Ingi.

Magnús Már og Ólafur Ingi.

Canon

Mynd: Mjólkurbikarinn

Elmar Kári frá vegna meiðsla.

Elmar Kári frá vegna meiðsla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Haukur Brink er tæpur.

Haukur Brink er tæpur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á möguleika á að vinna sinn þriðja bikarmeistaratitil.

Á möguleika á að vinna sinn þriðja bikarmeistaratitil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.