10.09.26 - 08:25
Brynjar Ingi Erluson
Richarlison fer í hart við Tottenham

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíski sóknarmaðurinn Richarlison er æfur út í Tottenham og hefur falið lögfræðingum sínum að höfða mál gegn félaginu og krefjast riftunar á samningi sínum. Þetta kemur fram hjá brasilíska miðlinum Globo.

TENGT EFNI
Richarlison ekki skráður í úrvalsdeildarhópinn
Richarlison óskaði eftir að yfirgefa Tottenham í sumar. Í kjölfarið var hann ekki skráður í úrvalsdeildarhóp félagsins og látinn æfa og spila með U21 árs liðinu.
Hann reyndi að komast annað á lokadögum félagaskiptagluggans en án árangurs.
Samkvæmt Globo eru ráðgjafar Richarlison ósáttir við framgöngu Tottenham og hafa falið lögfræðingum að höfða mál gegn félaginu. Krafist verði riftunar á samningi hans svo hann geti samið við Vasco da Gama í Brasilíu til áramóta.
Miðillinn líkir málinu við stöðu Renan Lodi hjá Al Hilal. Hann var ekki skráður í deildarhóp félagsins og krafðist riftunar á þeim grundvelli að hann gæti ekki stundað atvinnu sína. Hann fékk samningnum rift og gekk í kjölfarið til liðs við Atlético Mineiro í heimalandinu.
Vasco hefur rætt við Tottenham um kaup á Richarlison en samkvæmt Globo vill enska félagið fá meira en 20 milljónir punda fyrir hann. Það er meira en Vasco ræður við og því hefur framherjinn ákveðið að láta reyna á þessa leið.