10.09.26 - 08:13
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu snilldarmark Raphinha: „Sendi þá báða út í búð“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona byrja Meistaradeildina með látum en liðið vann öruggan og mjög svo þægilegan 5-1 sigur á Feyenoord á Nývangi í gær.
Raphinha hefur verið sjóðandi heitur með Börsungum í upphafi tímabils og var fljótur að koma sér á blað gegn Feyenoord.
„Hann fékk boltann frá Lamine Yamal í teignum og hótaði skoti með þeim afleiðingum að tveir varnarmenn Feyenoord fóru í rennitæklingu. Brasilíumaðurinn sendi þá báða út í búð áður en hann renndi boltanum snyrtilega framhjá markverðinum," skrifaði Brynjar Ingi Erluson, fréttamaður Fótbolta.net, í umfjöllun um leikinn. - Hér að neðan má sjá mark Raphinha og fleiri frábær mörk úr Meistaradeildinni.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Raphinha og Yamal fóru á kostum - Demirovic sökkti Amin og félögum
That Raphinha goal ????@Heineken | #UCLGOTD pic.twitter.com/btLO1gRuSx
— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) September 9, 2026