Fotbolti.net
10.09.26 - 17:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Útlit fyrir fjölsóttari úrslitaleik en í fyrra - Afturelding leiðir í baráttunni um stúkuna

Útlit fyrir fjölsóttari úrslitaleik en í fyrra - Afturelding leiðir í baráttunni um stúkuna
Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Mjólkurbikarinn
Tæplega 4000 miðar eru seldir á úrslitaleik Mjólkurbikars karla sem fram fer á morgun. Leikurinn hefst klukkan 19:00 annað kvöld og mætast lið Aftureldingar og Breiðabliks á Laugardalsvelli.

Lengjudeildarmeistararnir í Aftureldingu eru á leið í sinn fyrsta bikarúrslitaleik en Breiðablik hefur þrisvar spilað til bikarúrslita.

Á síðasta ári voru skráðir áhorfendur á bikarúrslitaleiknum 3979 en þá mættust Valur og Vestri. Síðast þegar Breiðablik spilaði til úrslita, árið 2018, mættu 3814 áhorfendur en þá var ansi kalt í veðri það kvöldið.
Líkleg byrjunarlið úrslitaleiksins - Vindurinn á kantinum og Ívar áfram í kuldanum?
TENGT EFNI

Líkleg byrjunarlið úrslitaleiksins - Vindurinn á kantinum og Ívar áfram í kuldanum?

Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net eru stuðningsmenn Aftureldingar að standa sig í betur í miðakaupum og var hlutfallið um 4:3 fyrr í dag.

Um 800 miðar eru þá seldir á úrslitaleik kvenna en sá leikur fer fram klukkan 16:00 á laugardag. Þar mætast Þróttur og Grindavík/Njarðvík.
Útlit fyrir fjölsóttari úrslitaleik en í fyrra - Afturelding leiðir í baráttunni um stúkuna
Canon

Mynd: KSÍ

Horfðu á upphitunarþátt Mjólkurbikarsins

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.