Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 10. október 2018 22:50
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo segist hafa farið aftur á klúbbinn með Mayorga
Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus á Ítalíu, segist hafa farið með Kathryn Mayorga aftur á skemmtistaðinn Rain á Palm Hotel, eftir að þau stunduðu kynlíf. Þetta kemur fram í portúgalska blaðinu Correio de Manho

Mayorga, sem er 34 ára, ásakar Ronaldo um að hafa nauðgað sér í Las Vegas árið 2009, nokkrum dögum áður en hann samdi við Real Madrid frá Manchester United.

Mayorga hefur haldið því fram til þessa að hún hafi ætlað að keyra á spítala eftir atburðinn en endað á því að keyra heim.

Correio de Manha heldur því nú fram að upptaka frá skemmtistaðnum Rain á Palm Hotel staðfesti að svo sé ekki og að hún hafi farið aftur á skemmtistaðinn með Ronaldo.

Lögfræðingar leikmannsins vinna nú í því að fá upptökurnar frá þessu kvöldi en samkvæmt blaðinu greindi Ronaldo lögfræðiteyminu frá því að þau hefðu farið aftur á klúbbinn eftir að hafa stundað kynmök.

Peter S. Christiansen, einn af lögfræðingum Ronaldo, ræddi sáttmálann sem Ronaldo og Mayorga áttu að hafa gert en hann segir þau skjöl fölsuð.

Sjá einnig:
Lögfræðingur Ronaldo: Fjölmiðlar með fölsuð skjöl


Athugasemdir
banner
banner
banner