Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 10. október 2019 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fara Thiago Silva og Edinson Cavani frítt frá PSG næsta sumar?
Mynd: Getty Images
Samningar þeirra Edinson Cavani og Thiago Silva eru að renna út næsta sumar hjá PSG.

Framherjinn úrúgvæski er 32 ára og brasilíski miðvörðurinn er 35 ára. Þeir eru ekki búnir að fá samningstilboð frá frönsku meisturunum og geta því, ef ekkert breytist, farið frítt frá félaginu næsta sumar.

Samkvæmt heimildum ESPN heldur Cavani enn í von um að fá nýjan samning en Silva hefur ekki fengið neinar vísbendingar um nýjan samning.

Cavani er undir smásjánni hjá Atletico, Napoli og Manchester United. Hann hefur verið í sex ár hjá PSG og skorað yfir 100 mörk. Silva hefur verið hjá PSG í sjö ár og verið fyrirliði liðsins í nokkur ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner