Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 10. nóvember 2022 16:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þórarinn Ingi áfram í Stjörnunni (Staðfest)
Fókus
Fókus
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórarinn Ingi Valdimarsson hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna og gildir sá samningur til ársins 2024. Eyjamaðurinn kom til Stjörnunnar frá FH árið 2018 og varð bikarmeistari með liðinu um haustið.

Hann missti af stórum hluta tímabilsins 2019 vegna meiðsla og öllu tímabilinu 2020. Hann sneri til baka í fyrra og lék þá tíu leiki og í ár lék hann í 24 af 27 deildarleikjum liðsins.

Þórarinn er 32 ára og spilar oftast sem vinstri bakvörður. Á sínum tíma lék hann fjóra landsleiki.

„Það er frábært að Tóti skuli halda áfram með okkur, enda vitum við vel hvað hann getur og teljum að hann eigi enn inni, ásamt því að hann hefur reynst yngri leikmönnum vel. Hlutverk hans í hópnum er mjög mikilvægt og Stjörnuhjartað hans er farið að slá fast. Eftir samtöl við Tóta er ljóst að hungrið er svo sannarlega til staðar og við hlökkum til þess að sjá hann áfram í Stjörnutreyjunni," segir Helgi Hrannarr, formaður mfl. ráðs karla.

„Ég er virkilega ánægður og stoltur að framlengja við Stjörnuna. Eftir fyrsta meiðslalausa tímabilið mitt í langan tíma get ég ekki beðið eftir að hefja undirbúning fyrir næsta tímabil. Það eru bjartir tímar framundan hjá Stjörnunni og verður gaman að taka þátt í áframhaldandi þróun klúbbsins," sagði Þórarinn sjálfur við undirskrift.
Athugasemdir
banner