Vestri hefur fengið makedónska varnarmanninn Goran Jovanovski til liðs við sig frá KFG.
Goran þekkir til á Vestfjörðum eftir að hafa leikið með BÍ/Bolungarvík (Vestra) í 1. deild árið 2014.
Goran þekkir til á Vestfjörðum eftir að hafa leikið með BÍ/Bolungarvík (Vestra) í 1. deild árið 2014.
Í fyrra spilaði hinn 39 ára gamli Goran átta leiki með KFG í 2. deildinni.
Goran lék með Keflavík í efstu deild árið 2011 en hann hefur síðan þá spilað í öllum deildum á Íslandi með liðum eins og KFR, Ægi, Skallagrími og Birninum.
Vestri hefur leik í Lengjubikarnum á laugardaginn þegar liðið mætir Val í Egilshöll.
Athugasemdir