Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 11. febrúar 2021 22:01
Victor Pálsson
Spænski bikarinn: Levante í fínum málum
Mynd: Getty Images
Athletic Bilbao 1 - 1 Levante
0-1 Gonzalo Melero('26)
1-1 Inigo Martinez('58)

Levante er í fínum málum í spænska Konungsbikarnum eftir fyrri leikinn við Athletic Bilbao í kvöld. Leikið var í undanúrslitum.

Leikið var á heimavelli Bilbao í kvöld og má alveg segja að heimaliðið hafi átt sigurinn skilið.

Levante átti eitt skot á mark Bilbao í öllum leiknum en tókst að skora í fyrri hálfleik og það gerði Gonzalo Melero.

Mark Melero dugði þó ekki til sigurs en Bilbao jafnaði metin á 58. mínútu með marki Inigo Martinez.

Það er því allt undir fyrir seinni leik liðanna sem fer fram á heimavelli Levante.
Athugasemdir
banner
banner
banner